03 apríl 2005
Má allveg !!! Þá er námskeiðinu lokið sem ég og Helgi Þór höfum sótt undanfarnar 2.vikur , má með sanni segja að við séum búnir að læra mikið og takmarkinu hafi náðst"VONANDI"....Eða vera betri manneskjur . Núna ætti að fara hægast um hjá manni , enda nóg að gera ef maður var ekki á æfingu þá var maður að þjálfa ef maður var ekki að þjálfa þá var maður á námskeiðinu FRAMEFTIR ÖLLU...... Núna verður maður að fara taka sér tak enda orðinn þetta gamall , komi tími á að pjakkurinn þroskist get ekki verið í endalausum fíflagangi , enda fór leiðbeinandinn minn aðeins í þessi mál mín gluggaði í sálarlíf mitt , margt sem hún sagði , gleymi seint þegar hún sagði þú ert góður strákur sem átt auðvelt með að elska heyrðist þá útí sal "Plís ertu ekki að grínast" Helgi nær varla andanum .., hann er djöfulisins player hrópaði Helgi hehe , Helgi var reyndar ekki lengi að taka orð sín til baka enda húmoristi mikill ....Góðir hálsar íbúðin mín losnar nk.föstudag og kalllllllinn keypti sér heimabíó um helgina af dýrari gerðinni svo verður maður bara á gólfinu fyrstu daganna ...Horfandi á imbann frameftir öllu ....Kemur allt í ljós enda miklar hugleiðingar þessa daganna !!:) Aðeins meira frá þessu námskeiði sem við fórum á.....Get með 100% vissu sagt að ég sé nýr og betri maður eftir þetta , enda pebbaði þetta mann algjörlega upp Helgi Þór þakka þér kærlega fyrir að plata mig á þetta með þér ,verst að Kiddi prestsonur með meiru skyldi hætta við þetta ...Allavega frá mínum bæjardyrum séð þá var þetta allveg brill..... Enda var þessi helgi hjá mér frekar róleg ekki sé meira sagt ... Föstudagskvöldið eyddi ég heima kominn í náttfötin um matarleitið horfði svo á úrslitakeppnina í körfunni,Hemma Gunn og Reykjavíkurnætur...Laugardagskvöldið var ekki verra ..Kíkti á Pizza Hut með Helga og Gunna svo video heima hjá Gunna í stútentaíbúðunum við Eggertsgötuna í borg óttans . Ætli ég hafi ekki verið sofnaður um miðnætti geri aðrir betur slökkti á símanum og alles eftir miðnætti.....Mættur til Ömmu og Afa í kaffi fyrir 10 í morgunn já pjakkurinn er farin að þroskast.....Ekki sé meira sagt , kæmi ekki á óvart ef bloggferlinum lyki fyrir loka aprílmánaðar. Stelpumálin ....Já sú saga gengur fjöllunum hærra að Marteinn sé genginn út ekki er það nú allveg rétt , hef mikið verið spurður um það undanfarna daga ...Mest hissa á því kannski ekkert skrítið,enda er ég bara mest rólegur í þessum málum hhhhhummmmmmmmmmmmmmmm :) Ef ég á að tala af einlægni hérna þá er ég á lausu , þó sagan segir annað...Er með samt eina álitlega í sigtinu ...Held hún sé nokk boðleg þó ég segi sjálfur frá ;) Spurning um að fara bjoða henni út .....hummmmm komast að eftirnafni hennar,hvaða stjörnumerki hún sé í ....Draumum hennar og öllum þeim fja..meinti pakka ...Gaman af þessu .....:) Helgi Þór er öflugur í sínu bloggi , komnar nýjar myndir af okkur strákunum , einnig er sykurpúðinn að skrifa um mig ......eins og alltaf ekkert satt af þessu sem sykurpúðinn segir !!!! blog.central.is/hefner Þetta er bloggið hjá þessum ágæta manni .........Mættir vera einlægri í skrifum þínum...Allt fyrir náungann !;) Takk fyrir að eyðileggja afmælið mitt heheheheh
3.4.05
30 mars 2005
Meistarinn lofar verkið !! Þetta sagði síðasta stelpa við mig sem ég svaf hjá en það var í ágústmánuði 2000 , ég er maður ásta ekki lausagangs!;) Páskarnir Sjaldan eða alldrei verið eins virkur í djamminu og núna um helgina , stendur óneitanlega uppúr partýið á hótel Loftleiðum á föstudagskvöldið hjá Telmu og co......Myndir frá því er að finna á þessari síðu public.fotki.com/telmasig gluggið svo í loftleiðadjamm muah muah hahahahahhaha flottir gaurar og sveittar stelpur , þar er að finna mynd af Helga Hefner berum að ofan !!! Kíktum síðan út á sunnudagskvöldinu líka ....Var meira á Hverfis en heima hjá mér um helgina ........ Enda má það allveg .......Fór reyndar edru þetta kvöldið enda kalllinn að springa eftir súkkulaðiát fyrr um daginn .....Nr.5 frá Nóa&sírius fékk að finna fyrir því á einum klukkatíma!!! Helgi greyjið fékk í magann á sun...kvöldinu flýtti sér heim .....hehehe frekar fyndið þegar hann hljóp út um 2.leitið Matti ekki sénsinn að maður kúki á HVERFIS klósettið er viðbjóður hehehehe endalaust fyndið !!:) Ég var góður þessa helgina heim snemma öll kvöldin enda kalllllinn orðin þroskaður , ekki langt síðan maður var síðastur út...En ó nei ekki í dag kominn í beddann fyrir fjögur öll kvöldinn :) Svo verður maður rólegur næstu helgi ...Kíki jafnvel í kvikmyndahúsborgarinnar....Pizza Hutarann á undan,það verða rólegheit hjá Matta Ægis...Þó fyrr hefði verið ....Reyna halda mér fjarri skemmtistöðum borgarinnar svona einu sinni til tilbreytingar :) Er reyndar bara búin að drekka 3.kvöld á þessu ári þannig að maður er ekki alltaf óþekkur .....:) Bið ykkur vel að lifa !!!
30.3.05
25 mars 2005
Sykurpúðinn á afmæli !!! Örvar Þór Kristjánsson er 28.ára í dag....Til lukku með það kalllllinn minn,ekki leiðinlegt að eiga afmæli á föstudegi og er ég nokk vissum að drengurinn muni halda uppá daginn með miklu fjöri enda er hann mikið fyrir gleðina:) Örvar er hvað frægastur fyrir körfuknattleikshæfni sína en á sínum yngri árum var hann einn af efnilegustu leikmönnum íslands enda í unlingalandsliðunum u-17 og u-19! Hann missti dampinn eftir tvítugt spilaði samt nokkur ár með Njarðvík og vann nokkra titla með þeim.Hann fór yfir til Stjörnunnar og var þar tvö tímabil einn af lykilmönnunum,fór svo til Grindavíkur í eitt ár ,spilaði með Reyni Sandgerði eitt ár ...Var síðan í vetur með Ljónunum. Hann er kominn með smá reynslu af þjálfun ....Hefur verið viðloðandi barnaþjálfun með góðum árangri,einnig var hann m.fl þjalfari hjá Grindavík"kvenna" en var rekinn þaðan í haust eftir 3.sigurleiki og engan tapleik eitthvað sem engin botnaði í á þeim tímapunkti,er aðstoðarþjálfari Njarðvíkur"karla" og var með þeim bikarmeistari um daginn þegar þeir lögðu Fjölni. Hann er drengur góður þó honum finnist gaman að skrökva og djóka í náunganum.Hef ég oft fengið að kynnast því,en þó hann sé þannig þá er ekki hægt að taka það af honum að þetta er góður strákur :) Kynntist honum sumarið 2001 þar sem við vorum sumarpjakkar hjá hertz ..... óFÁU SKIPTIN sem hann tók mig er samt farin að þekkja inná hann núna"þó fyrr hefði verið" Ógleymanlegt þegar hann sendi mig í pickup að sækja kúnna í Njarðvík....Lét mig vita þegar ég stóð fyrir framan hurðina að þetta væri hjá skvis sem að ég var að spá í......Engin að biðja um bílaleigubíl....Örverpið að taka mig aðeins í gegn...muah muah þetta var ekki það eina get ég sagt ykkur..... Plataði mig í eina æðisgegnu utanlandsferð sem ég hef farið í ...Fórum til Spánar 2003 costa del sol var það... Allavega til lukku með daginn kúturinn minn !!!!:) Páskarnir Já njótið páskanna vel...Ætla kíkja á lífið í kvöld,erum nokkrir að fara fjölmenna til höfuðborgarinnar...Fyrst partý á hotel loftleiðum Bobby Fisher þekkir Helga Þór ágætlega,verður með smá teiti...Öllu ganni sleppt... Þá verður tekið á því í kvöld og minns er farin að taka sig til ,enda mæting í partý um níuleitið:)
25.3.05
17 mars 2005
Love-ú-beibí Svona á þetta vera .........Snellað veður úti,algjört gluggaveður !!! Þá á maður sínar bestu stundir fyrir framan imbann eða tölvuna , er sko allveg að fíla þetta í rænur......Byrjaður að setja í töskuna fyrir ræktina , er með kjúklingabringu í ofninum....Já Marteinn Ægisson er efni í owsome húsmóðir.... Annars er ég og Helgi búin að vera undanfarnar tvær vikur á námskeiði ..Þetta námskeið stendur yfir í 4.vikur erum við að læra almenna kurteisi,mannasiði/mannleg samskipti og siðferði...Rosalega gaman á þessu...Erum núna að tala um ástina og öllu sem fylgir því,nema hvað eftir páska ætla ég og Helgi að slökkva á símanum okkar slíta öllum samskiptum og byrja með hreinan skjöld þegar tækifærið gefst ,boðleg skvis birtist:).....Vera heiðarlegir hummm eins og alltaf !!! Jú jú hún Bergrún sem sér um þessi mál vill að við prófum þetta og við strákarnir ætlum að kíla á þetta ...heheh símalaus í tíu daga hummmmmmm allt hægt ef viljinn er fyrir hendi...... Geta , ætla ,skal og hugsa gæs ......... sami hugsunarháttur og Örvar viðhafði áður en hann setti í dömuna við sveindómsminninn hérna um árið;) Er að fara í fermingu á sunnudaginn hjá bróðirdóttir minni,verslaði þessa fínu gjöf handa kvikindinu...Enda er þetta algjört krútt og maður verður að vera frændinn sem gaf flottu gjöfina:) Annars á ég afmæli á sunnudaginn ekki leiðinlegt...Alltaf gaman að eiga afmæli,,,,,,,,20.mars !;) Þannig að ég verð rólegur um helgina ,er að spá í að vera bara heima hjá mér og kíkja kannski í bíóhús borgarinnar jafnvel að snæða einhvern dýrindis skyndibita ....Allavega vantar töluvert uppá djammfílining...Hver veit nema hann komi....á laugardaginn :)
17.3.05
14 mars 2005
Fallerí fallera !!! Helgin að baki nokkuð góð,það sem stendur uppúr er án nokkurs vafa idolið á fö svo djammið á lau...... Já HILDUR Vala er vann stjörnuleitina enda stóð hún sig glæsilega ásamt Heiðu "siginbrjóst" sem stóð sig líka vel,horfði á idolið með fósturfjölskyldunni minni vogagerði 14 Viggi og co ....Svaka góður stemmari !!! Laugardagurinn var nokkuð skemmtilegur verð ég að segja kíkti útá lífið með Helga ,Kidda , og Gunna ÁSTRÁÐS.... Fórum á hverfis rosalega gaman , svo kíktum við á prawda og tókum sláttuvéladansinn .... Helgi Þór vinur minn var svívirtur um daginn af einni skvis .....hittum hana og vinkonu hennar að gangi á laugarveginum ...Hún suðaði og suðaði að fá að tosa kvikindið úr buksunum....En Helgi var sterkur enda þarna er á ferðinni maður ásta en ekki lausagangs! Tjáði mér það á leiðinni heim að hann vildi ekki gera sömu mistökin tvisvar sinnum,ég man líka þegar hann var að bjalla á mig á nóttunni gat engan veginn sofnað útaf sársauka í hjartanu sínu , vá hvað ég var orðin pirraður á honum...En þetta er bara svona þegar menn verða sáriri og hitt kynið leikur sér af því,en hann var sterkur um helgina .....Stoltur af þér Helgi minn...Hún hvíslandi í eyra þitt "komdu heim vil hann harðann" ;) hehehehehhehehehehe
14.3.05
10 mars 2005
Idol-stjörnuleit!!! Já það er komið að lokakvöldinu og má með sanni segja að maður muni kveðja þessi idolföstudagskvöld með söknuði ..... Allavega er eitt stykki idolparty hjá mér á morgunn,munum hittast hálftíma fyrir ...Er ég á því að Hildur Vala muni vinna þessa keppni og þeir sem vilja samgleðjast henni er bent á að mæta á Gaukinn ...Annars er þetta sigur fyrir þær báðar að vera komnar svona langt ....ÁFRAM HILDUR VALA Ekki skemmir fyrir að hún hefur luckið með sér og hún þyrfti ekki að suða lengi í Ægissyni ;) Margt og mikið búið að vera gerast....Íbúðin mín að losna um mánaðarmótin og látið ykkur ekki bregða þó það birtist boðskort í póstinum ...Enda eru miklar hugleiðingar varðandi íbúðina þessa daganna !!! Er að mála herbergið mitt hjá gamla...lofaði að skila því sómasamlega frá mér þegar ég færi úr kotinu ætla standa við það ,annars kom Þórir"doddi" Hauks til mín á þri...var ekki ánægður hvað þetta gekk hægt hjá mér og korteri seinni birtist drengurinn í slitnum fötum ...reyf af mér rúlluna þetta er ekkert að ganga hjá þér ....tók loftið hjá mér ....Doddinn engum líkur !!! Helgi Þór BJALLAÐI Á MIG NÚNA í vikunni eitthvað er að angra Eggert son hans ...en hann er búin að vera pissa svoldið undir að undanförnu og að sjálfssögðu leitaði hann til mín ...Enda átti ég við þetta sama vandamál að stríða á sínum tíma ......En þetta bjargast allveg Helgi minn bara passa að hann pissi áður en hann fer í háttinn !!! Annars er mér að lýtast nokkuð vel á þessa dömu sem þér langar í ....HEF HEYRT MARGT GOTT UM HANA og þú lætur bara slag standa ...annars var ég með Baddý áðan á kaffihúsi og ég átti að minna þig á að þú skuldar henni bioferð og þetta verður bráðaum lögreglumál... Gaman að hitta Baddý áðan ... Margt sem að við höfum brallað saman , en hún er í fantaformi eins og alltaf....Bauð mér uppá sódavatn kannski afþví að minns er í ræktinni alla morgna enda verður maður að taka á því fyrir sumarið !!! Talandi um sumarið ....Þarf að velja mér sumarfrídaga núna fljótlega... Ekki mikið búin að plana fríið mitt .... Margt í boði ... Örvar vill plata mig til usa og taka roadtrip til Vegas ...Einnig vill hann plata mig til eyja um versló en ég hef farið 6.sinnum til eyja þannig að ég er búin með minn skerf af þessari æðislegu útileiguhátíð "þarna þarf maður ekki að hafa stelpu til að vera ástfanginn,enda ertu bara ástfanginn að stað og stund"Veit það að ef ég verð ekki erlendis þá mun ég mæta ábyggilega í brekkusönginn á sunnudeginum....taka seinasta kvöldið með stæl , erfitt að halda sig fjarri þessu :) Svo er Helgi Þór eitthvað að reyna nappa mér til Danmerkur,ekki allveg að virka reyndar.......Enda Mamma hans ek mikið fyrir augað,og + það er hún á föstu en það má breyta því !!! Svo er einn vinahópurinn að fara til Bene í tvær vikur þannig að margt er í boði....Væri helst til í að standsetja íbúðina mína, gera hana kósí bara ...annars verður maður að fara eitthvað út í sumar hefur verið regla hjá mér undanfarin ár....taka helgarferð á þetta eða 5.daganna ...ef maður fer ekki í sólarferðina...Langar að vera í fríi allann ágústmánuð enda er það svo skemmtilegur árstími...Með mínum uppáhalds ;) Svo eru sumir að undirbúa útileigu og sumarbústaðaferð..Þetta fékk ég að heyra í gær,ekki leiðinlegt !;) Jæja helgin kallar með öllu sínu veldi og mun hún snúast um idolið væntanlega,allavega ætla ég að skella mér í idolpartý á morgunn hjá Vigga og family ...Ætla reyndar á ekkert skrall eftir idolið bara glápa á dvd og hafa það kósí...Er reyndar búin að lofa mér í spinningtíma á lau..morgunn með Bjarndísi Hrönn #Baddý# Ætla salta hana á hjólinu með dynjandi rokktónlist á fóninum !!! Svo um kvöldið kíkir maður út,enda er alltaf miklu meira fólk á tjúttinu á laugardagskvöldum frekar en föstudagskvöldunum ....Sjáumst á Hverfis hvar annarsstaðar muah muah muah Veriði góð við hvort annað og hafið þið jákvæðnina að leiðarvopni þessa helgina ....Muah muah hahahhahahahahahaha og ennþá meira muah muha hahahahhahahahahhahahah LATER
10.3.05
07 mars 2005
7.mars 2005 Það var mikill kraftur í pjakknum þessa helgina málaði eitt stykki herbergi,tók bílasölurúnt alldrei að vita nema kallllinn fjárfesti í nýrri bifreið með vorinu.Kikti á djammið með Helga , Amöndu , Kötu og Magga á laugardagskvöldinu. Frikki bauð mér svo í mat á sunnudeginum í hádeginu kannski vegna þess að ákveðin skvis var að vinna með honum maður spyr sig :) Allavega var helgin ljómandi góð hjá mér...djammið var nokkuð gott,ekki leiðinlegt allavega , kikti á Helga og co á brodway....HELGI SAMUR VIÐ SIG OPNAÐI FYRIR MÉR BAKDYRAmegin enda öllum hnútum kunnugur síðan hann tók þátt í hr.ísl þarna um árið.Ég var edru enda þurfti að vakna snemma á sunnudagsmorgninum.Fórum á hverfis uppúr eitt og hið ótrúlega gerðist ég gekk út kl.03:07 nokkuð sáttur með kvöldið ... Hitti slatta af fólki og enda er ekkert skemmtilegra en að sýna sig og sjá aðra :) Annars var maður í því að mála þessa helgina og væntanlega eitthvað næstu kvöld .... Svo er pjakkurinn kominn á fullu í ræktina ætla vera drulluflottur gæji með luckið í lagi næsta sumar....Fór í morgunn fyrir 7 ...ekkert jafn hresssandi en að taka smá á því fyrir krefjandi vinnudag en samt skemmtilegan dag sem framundan er svona árla morguns.... Takamarkið er að vera virkilega duglegur fyrir páskana ....og eitthvað framá vorið :) Ófáu skiptin sem Örvar góðvinur minn platar mann í lónið ...þá er nú eins gott að hafa skrokkinn í lagi enda með mann eins og örvar hliðiná sér 4%fita utaná þeim ágæta manni.... Annars eru hlunkar í tísku í dag.....;) BARNALAND.IS Finnið síðuna hjá Finnur Valdimar friðriksson
7.3.05
|